MAUS Stixx Pro V5
59.990 kr.
MAUS Stixx PRO V5 er sjálfvirkt eldvarnatæki sem slekkur eldinn áður en hann dreifir sér.
Þessa verðlaunuðu uppfinningu er hægt að setja upp í hvaða litla rými sem er, þar sem eldur getur komið upp. Það fer sjálfkrafa í gang við 170°C hita og fyllir rýmið af kalíumríkum reyk sem gleypir í sig hitann, truflar efnaferla í brunanum og slekkur með því eldinn. PRO V5 fimmfalt öflugra en PRO.
Eldsupptök verða í rafmagnstöflum af mismunandi ástæðum. Lélegar rafleiðslur, brotnir og gallaðir íhlutir, of lausar eða fastar tengingar, eldingar, gamlar rafleiðslur, yfirspenna og margt fleira geta valdið hættu á eldsvoða sem geta verið lífshættulegir.
5 eintök á lager
Tæknin að baki MAUS Stixx Pro
Eldvarnir þróaðar fyrir geimferðir
Fasta efnið samanstendur aðallega af kalíumsameindum. Kalíumsindurefni eru mjög virk og trufla efnabruna með því að hlutleysa vetnis-, súrefnis- og hýdroxíðsindurefni í eldinum. Þar sem agnúðar innihalda örsmáar agnir í gasi verða áhrifin mun skilvirkari við slökkvistarf en hefðbundin duftslökkvitæki. Fallhraði agnanna minnkar með minna þvermáli og yfirborðsflatarmálið verður stórt í hlutfalli við þyngd agnanna sem leiðir til þess að loftmótstaðan verður tiltölulega mikil í samanburði við þyngdarkraftinn. Þetta leiðir til þess að agnirnar svífa lengur og draga því úr líkum á að eldurinn skjóti aftur rótum. Slökkvikrafturinn á þyngdareiningu er á milli 3-10 sinnum meiri en fyrir halon og koltvísýring (CO2).
Hæð |
1,0 cm |
---|---|
Breidd |
1,8 cm |
Lengd |
9,8 cm |
Þyngd |
36g |
Tækni |
Patented potassium smoke |
Hentar Fyrir |
0.1m³ |
Virkar Við |
-30°C, + 70°C |
Virkjunarhiti |
170°C±10°C |
Líftími Vöru |
5 ár (6 ár í umbúðum) |
Vottanir |
EC, BAM |
Uppsetning í rafmagnstöflu
- Rjúfðu rafstrauminn.
- Opnaðu hlíf töflunnar.
- Hreinsaðu flötinn sem þú ætlar að festa MAUS Stixx Pro við.
- Fjarlægðu rauðu hlífðarfilmuna af MAUS Stixx Pro og festu við yfirborðið með léttum þrýstingi.
- Staðsettu alltaf MAUS Stixx Pro efst í rýminu og helst þannig að götin snúi niður. Gakktu úr skugga um að það sé 2-3 cm autt pláss fyrir framan götin til þess að reykurinn (agnúðinn) geti auðveldlega dreift sér um rýmið.
- Ef um þína eigin eign er að ræða, notaðu þá meðfylgjandi límmiða til að skrifa upplýsingar með vatnsheldum penna og festa utan á rýmið. Merktu einnig við í dagatalinu þínu svo þú munir eftir að skipta út MAUS Stixx PRO eftir fimm ár.
- Þegar þú hefur lokið uppsetningunni og lokað rafmagnstöflunni er hægt að hleypa straumnum aftur á.